Korpuskóli
4. bekkur
Veturinn 2001 - 2002

Íslenska
Björg Vigfúsína Kjartansdóttir

Verkefni úr Skinnu - heimanám 3

Nú eigið þið að skrifa sögu sem er ein A4 blaðsíða. Það er gott að hafa í huga þegar þú sest til að skrifa að einhverjir eiga eftir að lesa söguna þína. Hvernig ætlar þú að hafa söguna þína?

  • Spennandi.
  • Óhugnarlega.
  • Glaðlega.
  • Sorglega.
  • Fyndna.
  • Draugalega.
  • Ævintýralega.

Það er gott að vera búin að ákveða þetta áður en þú byrjar á að búa til söguna þína.

Leið sem þú getur farið við að búa til söguna þína er meðal annars,

  • Gera lesandann spenntan og forvitinn í upphafi tilað hann langi að lesa áfram.
  • Ákveða hvað þú ætlar að hafa margar persónur í sögunni þinni.
  • Lýsa persónunum vel.
  • Segja frá hvað þær hugsa og segja.
  • Lýsa hvaða skoðun persónurnar hafa.

Þú mátt skrifa söguna í tölvuna, prenta hana og koma með hana í skólann.

Gangi þér vel
Björg