Snati og Óli

Heyrðu snöggvast, Snati minn,
sjalli vinur kæri,
heldurðu ekki hringinn þinn
ég hermannlega bæri?

Lof mér nú að leika að
látúnshálsgjörð þinni;
ég skal seinna jafna það
með jólaköku minni.

Jæja þá, í þetta sinn
þér er heimil ólin.
En hvenær koma , kæri minn,
kakan þín og jólin?


Þorsteinn Erlingsson