Sprettur

Ég berst á fáki fráum
fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum
hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og á harða, harða spretti
:: hendist áfram klárinn minn. ::

Það er sem fjöllin fljúgi
móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer,
og lund mín er svo létt,
eins og gæti ég gjörvallt lífið
:: geisað fram í einum sprett.::

Hve fjör í æðar færist
fáknum með.
Hve hjartað léttar hrærist.
Hlær við geð
að finna fjörtök stinn.
Þú ert mesti gæðagammur,
:: góði Léttir, klárinn minn. ::

Hannes Hafstein