Lífsleikni
Hvað segir námskráin?
Þrepamarkmið 4. bekkjar
Sjálfsþekking, samskipti, sköpun og lífsstíll
Nemandi
- sé fær um að túlka mismunandi tilfinningar
- virði leikreglur í hópleikjum
- geti bent á og nefnt ýmsa þætti í umhverfinu sem hafa áhrif á líðan hans
- geti velt fyrir sér jafnréttishugtakinu út frá ýmsum sjónarhornum, t.d. jafnrétti á milli manna og dýra, á milli forstjóra og starfsmanna, barna og fullorðinna
- þjálfist í að tjá tilfinningar sínar, hugsanir og væntingar á ýmsan hátt, t.d. með orðum eða látbragði
- geti sett sig í spor deiluaðila og leitað sáttaleiða
- geti túlkað hlutverk fjölskyldumeðlima í ólíkum fjölskyldugerðum
- geti lýst þörfum einstaklinga við ýmsar aðstæður og hvernig hægt er að koma til móts við þær, t.d. klæðnaður miðað við aðstæður, næring út frá orkuþörf
- sé fær um að setja sér markmið að eigin frumkvæði, t.d. hvenær hann ætlar að ljúka við heimanám eða taka til
- geti sett sig í spor ólíkra persóna til að finna samkennd með þeim, t.d. hippa, öldungi, barni, nýbúa, ljósmóður, kennara, fatlaðs manns og bónda
Samfélag, umhverfi, náttúra og menning
Nemandi
- kunni umferðarreglur og umferðarmerki fyrir gangandi vegfarendur
- þekki vel öruggustu leið sína í skólann og beri sig rétt að við gangbrautir og götuljós
- þjálfist í notkun reiðhjóls sem leiktækis á leiksvæðum og stígum
- læri að lesa leiðbeiningar og skilaboð af skiltum
- læri að afla upplýsinga um símanúmer
- þjálfist í að nota almenningsvagna undir leiðsögn fullorðinna
- geri sér grein fyrir hættum á heimili sínu og í nágrenninu
- geti greint frá verslunum og þjónustuaðilum í nánasta umhverfi