Markmið og leiðir í íslensku
3. bekkur 2004 - 2005

Lestur

Markmið

  • vinna fjölbreytt verkefni sem stuðla að auknum orðaforða og málskilningi
  • örvist til að lesa með því að vinna með eigin frásagnir og annarra
  • hafi greiðan aðgang að fræðibókum, handbókum og skáldverkum fyrir börn
  • fái tækifæri til að lesa ýmsar tegundir texta við hæfi
  • þjálfist í að velja sér bækur af skólasafni til að lesa sér til ánægju, upphátt eða í hljóði
  • auki lestrarhraða sinn og efli lesskilning með fjölbreyttum verkefnum
  • fái tækifæri til að lesa fyrirmæli og fara eftir þeim
  • þjálfist í upplestri, bæði undirbúinn og óundirbúinn
  • fái tækifæri til að gera munnlega og skriflega grein fyrir efni sem hann hefur lesið
  • sé hvattur til að lesa sem mest

Leiðir

  • Einstaklings verkefni
  • Hópverkefni
  • Lesa fyrir kennarann
  • Lesa í hljóði
  • Lesa leiðbeinigar í ýmsum verkefnum

 

Kennslugögn

  • Ýmsar léttlestrarbækur
  • Ýmsar vinnubækur með léttlestrarbókum
  • Við lesum saman og verkefnabók
  • Fara á skólabókasafn

 

Námsmat

  • Hraðlestrarpróf
  • Læsi

Ferilmappa

  • Lesa inná snældu að hausti og vori

Talað mál og framsögn

Markmið

  • þjálfist í að tjá sig frammi fyrir bekkjarfélögum sínum
  • öðlist færni í að tjá sig munnlega í leikjum
  • vinni verkefni sem gera kröfur um að hann tjái sig munnlega
  • segi frá eigin reynslu
  • ræði við bekkjarfélaga sína, t.d. þegar upp koma vandamál, og reyni að komast að sameiginlegri niðurstöðu
  • kynni vinnu sína fyrir bekkjarfélögum og foreldrum
  • segi frá hvernig hann komst að tiltekinni niðurstöðu og geti rökstutt hana
  • endursegi og/eða lesi sögur og ljóð upphátt
  • þjálfist í að flytja stuttar undirbúnar frásagnir
  • geti sagt skipulega frá verkefnum sem hann hefur unnið
  • fái tækifæri til að flytja texta frammi fyrir hópi, t.d. ljóð eða leiktexta
  • átti sig á þeim reglum sem gilda þegar margir þurfa að tjá sig í einu
  • sé hvattur til að flytja mál sitt skýrt og áheyrilega
  • fái tækifæri til að syngja algenga íslenska söngva og taki þátt í fjöldasöng, m.a. söngva sem tengjast árstíðunum og hátíðum

Leiðir

  • Nemendur tjá sig í regnbogalandi (heimakrók) daglega
  • Nemendur tjá sig í frímínútum, vali, verkefnum og hringekjum
  • Nemendur tjá sig á bekkjarkvöldum
  • Lesa upp á ljóð eða sögu á bókmenntadegi - kaffihús
  • Leiðbeina nemendum þegar þeir lesa fyrir kennarann að tala skýrt og mátulega hátt
  • Syngja saman

Hlustun og áhorf

Markmið

  • hlusti á upplestur á sögum og ljóðum, bæði sem kennari les og flutt eru á hljóð- eða myndböndum
  • svari spurningum varðandi efni sem hann hefur hlustað á
  • hlusti á umræður bekkjarfélaga sinna og haldi athygli í töluverðan tíma
  • fari í leiki þar sem þess er krafist að hlustað sé á og farið eftir munnlegum fyrirmælum
  • hlusti á fyrirmæli kennara og fari eftir þeim
  • horfi á leikþætti og söngatriði ýmist á sviði eða af myndbandi
  • endursegi efni sem hann hefur hlustað eða horft á
  • þjálfist í að hlusta á upplestur á sögum og leiktextum eftir íslenska og erlenda höfunda
  • þjálfist í að hlusta á upplestur ljóða með sterkri hrynjandi, bæði hefðbundinna og óhefðbundinna ljóða

Leiðir

  • Kennari les sögur í nestistímum
  • Hlusta á hljóðsnældur í nestistímum
  • Ýmsir leikir
  • Horfa á hvort annað leika leikrit
  • Skólaskemmtanir

Kennslugögn

  • Ýmsar bækur
  • Ýmsar hljóðsnældur

Ritun

Markmið

  • nái tökum á að draga rétt til stafs
  • temji sér að nota þá skriftargerð sem honum hefur verið kennd
  • þjálfist í að stafsetja rétt með margvíslegum verkefnum
  • æfist í að semja sögur og ljóð og skrifi sjálfur
  • þjálfist í að lýsa hlutum og athöfnum í nánasta umhverfi í rituðu máli
  • skrái frásagnir um atburði úr eigin lífi
  • skrái framvindu og niðurstöður í verkefnum sem hann hefur unnið í öðrum námsgreinum, t.d. í náttúrufræði og samfélagsgreinum
  • þjálfist í því að gera útdrætti og skrá efni munnlegra og/eða skriflegra frásagna
  • þjálfist í að skrifa einfaldan texta eftir upplestri
  • læri að fara eftir nokkrum stafsetningarreglum, t.d. að hafa bil á milli orða, hafa upphafsstafi á eftir punkti og enga upphafsstafi inni í orðum
  • leggi sig fram um að skrifa vel og vanda allan frágang
  • auki skriftarhraða sinn með ýmsum verkefnum

Leiðir

  • Minna nemendur á að haldar rétt á blýantinum
  • Nemendur hafa spjald á borðinu hjá sér þar sem sýnt er hvernig draga á til stafs
  • Verkefni í vinnubækur
  • Skapandi ritun
  • Hópverkefni
  • Einstaklingsverkefni
  • Þemaverkefni
  • Skriftar tímar

Kennslugögn

  • Skrift 3
  • Ás og eða Tvistur
  • Pínu litla ritrún eða Litla ritrún

Námsmat

Metið með verkefnum í samfélgs- og náttúrufræði

Ferilmappa

  • Ljósrit úr skriftarbókinni að hausti, um áramót og að vori
  • Sögur sem nemendur hafa samið

 

Bókmenntir

Markmið

  • læri nokkrar þekktar vísur og ljóð til söngs og annars munnlegs flutnings
  • taki þátt í leikrænni tjáningu á bókmenntatexta
  • fái tækifæri til að lesa eða kynnast á annan hátt sögum, þjóðsögum, ævintýrum, dæmisögum og skopsögum
  • kynnist markvisst skólasafni og fái aðstoð við að velja bækur á safninu
  • þjálfist í að fá bækur að láni á skólasafni
  • kynnist verkum valinna íslenskra rithöfunda
  • þjálfist í að ræða um bókmenntaverk sem hann hefur hlustað á
  • fái tækifæri til að lesa sér til fróðleiks og skemmtunar miðað við lestrargetu og áhuga
  • geri sér grein fyrir hugtökum eins og söguþráður og sögulok

Leiðir

  • Lesa ýmsar bækur
  • Fá rithöfund í heimsókn
  • Kaffihúsa dag með upplestri t.d fá nemendur úr eldri bekkjum í heimsókn til að lesa fyrir nemendur
  • Fara ás kólabókasafn
  • Umræður um bækur
  • Nemendur búa til nokkrar bækur

Kennslugögn

  • Ýmsar bækur

Málfræði



Markmið

  • þekki hugtökin bókstafur, orð og setning
  • þjálfist í að þekkja og greina samheiti, andheiti, sérnöfn og samnöfn
  • átti sig á mun sérhljóða og samhljóða
  • geri sér nokkra grein fyrir orðflokkunum nafnorð, sagnorð og lýsingarorð
  • átti sig á því hvernig orð geta verið samsett úr tveimur eða fleiri orðum
  • fái fjölbreytt tækifæri til að nota tungumálið
  • átti sig fallbeygingu nafnorða
  • kannist við hvaða orðmynd er uppflettimynd nafnorðs og geti nýtt sér það við notkun orðabóka
  • fái tækifæri til að leika sér með tungumálið á fjölbreyttan hátt, t.d. með rími og orðaleikjum

Leiðir

  • Innlagnir
  • Vinna í vinnubækur
  • Tengja við bækur og verkefni sem þau búa til
  • Nota orðabækur
  • Vinna í fjölrit

Kennslugögn

  • Ás eða tvistur
  • Pínu litla ritrún eða Litla ritrún
  • Fjölrituð verkefni
  • Orðabækur
  • Orðaskygnir

Námsmat