Lífsleikni

Áfangamarkmið við lok 4. bekkjar

Markmið
Sjálfsþekking, samskipti, sköpun og lífsstíll
Nemandi á að
- geta greint og lýst ýmsum tilfinningum, t.d. hamingju, gleði, sorg, reiði
- gera sér grein fyrir að í umhverfinu eru margvísleg áreiti, jákvæð og neikvæð, sem geta haft áhrif á líf hans
- virða og átta sig á tilgangi leikreglna í mannlegum samskiptum
- geta sett hugtakið jafnrétti í margbreytilegt samhengi
- geta tjáð hugsanir, skoðanir, tilfinningar og væntingar
- hafa lært leiðir til að efla samskiptafærni sína sem felur meðal annars í sér
o færni í samvinnu
o að sýna tillitssemi
o að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
o að setja sig í spor annarra
o að hlusta á aðra og sýna kurteisi
- gera sér grein fyrir mismunandi fjölskyldugerðum og stöðu einstaklinga innan þeirra
- hafa áræði til spyrja gagnrýninna spurninga
- sýna frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum
- vita hvað átt er við með markmiðum og hvernig fólk notar markmið til að ná því sem að er stefnt
- þekkja líkamlegar þarfir sínar fyrir næringu, hvíld, hreyfingu og hreinlæti og leitast við að koma til móts við þær
- gera sér grein fyrir að ekki eru allir eins og tileinka sér þannig virðingu fyrir sérstöðu annarra hvað varðar útlit, klæðaburð og smekk

Leiðir

  • Umræður
  • Verkefni samþætt við aðrar námsgreinar
  • Daglegt líf
  • Hópastarf
  • Hringekjur
  • Samvinna við 2. bekk
  • Þemaverkefni

Kennslugögn


Markmið

Samfélag, umhverfi, náttúra og menning
Nemandi á að
- kunna skil á umferðarreglum fyrir gangandi vegfarendur
- geta bent á slysagildrur í umhverfinu, á heimilum og þekki varasöm efni sem þar kunna að vera geymd
- geta leitað eftir upplýsingum og leiðbeiningum til að rata um umhverfi sitt, t.d. munnlegum fyrirmælum eða vegvísum

Leiðir

  • Umferðafræðsla hjá lögreglu og strætisvögnum Reykjavíkur
  • Vettvangsferðir