Markmið og leiðir
samfélagsfræði
3. bekkur 2004 - 2005

Sjálfsmynd og félagslegt umhverfi

Markmið

  • fái innsýn í fjölskyldulíf fyrir 1-2 mannsöldrum, t.d. með viðtölum við eldra fólk í eigin fjölskyldu, gömlum ljósmyndum, kvikmyndum og/eða öðrum heimildum
  • geri sér ljóst að sérhvert mannlegt samfélag setur sér lög og reglur, að til eru landslög og alþjóðareglur
  • kynnist því að börn búa við ólíkar efnahagslegar og félagslegar aðstæður í heiminum
  • þekki til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem á að tryggja öllum börnum ákveðin sameiginleg réttindi

Leiðir

  • Þemaverkfni um land
  • Heimsókn frá lögreglu
  • Verkefni um sameinuðu þjóðirnar - tengja við þemað um land

Land og þjóð

Markmið

  • skilji hlutverk þjóðsöngsins og þjóðhátíðardagsins í stórum dráttum
  • kynnist áföngum á leið Íslands til sjálfstæðis
  • þekki mikilvægar stjórnsýslustofnanir eins og Alþingi, forsetaembættið, stjórnarráð og hæstarétt
  • fræðist um hlutverk og gildi Þingvalla í sögu og samtíð
  • verði kunnugur nokkrum persónum í Íslandssögunni, t.d. Ingólfi Arnarsyni, Auði djúpúðgu, Snorra Sturlusyni og Jóni Sigurðssyni
  • átti sig á tengslum framleiðslu og þjónustu með því að kynnast framleiðsluferli vöru frá framleiðanda til neytanda, t.d. mjólkur
  • kynnist atvinnuvegum sem standa á gömlum grunni og kanni hvernig fjölbreytni í atvinnulífi hefur aukist á þessari öld
  • kynnist mismunandi störfum fólks, t.d. með kynningu á störfum foreldra í bekknum
  • átti sig í stórum dráttum á verðmætasköpun í þjóðfélaginu, inn- og útflutningi og hlutverki gjaldmiðils og peningastofnana

Leiðir

  • Umræða um þjóðsönginn og þjóðhátíðarfánann 1.des
  • Þema um land
  • Þema um Ingólf, Auði, Snorra og Jón Sigurðsson

Heimsbyggð

Markmið
  • verði fróðari um vesturferðirnar fyrir og um 1900 og búsetu Íslendinga erlendis nú
  • geti sagt frá frægum landkönnuðum eins og Eiríki rauða, Leifi Eiríkssyni og Kólumbusi

Leiðir

  • Þema um Eirík rauða, Leif Eiríksson, Kólumbus

Tími

Markmið

  • geti raðað þekktum fyrirbærum í tímaröð, t.d. jörðin verður til, risaeðlur búa á jörðinni, fyrstu mennirnir setjast að á Íslandi, amma fæddist, ég fæddist o.s.frv.
  • læri að teikna tímaás og raða nokkrum þáttum á hann, t.d. áföngum í eigin lífi

Leiðir

  • Tengja við þema um land

 

Rýni

Markmið

  • fái þjálfun í að flokka fyrirbæri, bera saman, tengja, leita orsaka og greina afleiðingar, t.d. eftir vettvangsathugun
  • reyni kosti samvinnu, að margir afli upplýsinga og að mismunandi hæfileikar innan hópsins nýtist við að miðla upplýsingum (einn er góður að semja, annar að skrifa, teikna o.s.frv.)
  • læri að greina á milli eigin reynslu og reynslu annarra, t.d. með því að bera saman frásögn sína og annars bekkjarfélaga af atburði eða upplifun

Leiðir

  • Lífsleikni - tengja við þróunarverkefni og fjölgreindarkenninguna
  • Daglegar umræður

Innlifun og víðsýni

Markmið

  • fái að kynnast sögunni í gegnum viðtöl við eldra fólk eða með því að hlýða á frásagnir þess um liðna atburði
  • fái að kynnast sögunni í gegnum ljósmyndir, kvikmyndir og með heimsókn á listasafn og/eða minjasafn
  • geti sagt dæmi af mismunandi siðum og venjum í heiminum, t.d. í borðhaldi og hátíðahaldi, og öðlist virðingu fyrir menningu annarra þjóða

Leiðir

  • Skoða sýningu í Boragskjalasafninu
  • Þema um Ásmund Sveinsson lista mann
  • Þema um land

 

Túlkun og tjáning

 

Markmið

  • fái að tjá sig um frásagnir eða fréttir í blöðum, útvarpi eða sjónvarpi
  • þjálfist í að flytja mál sitt í heyranda hljóði og svara fyrirspurnum um efnið
  • læri að hlusta á aðra og bera fram spurningar um efnið

Leiðir

  • Umræður í Regnbogalandi
  • Kynning á þemaverkefnum