Þrepamarkmið náttúrufræði 3. bekk
Nemandi
Úr eðlisvísindum
- geri athuganir á því hvað gerist þegar ýmis efni eru leyst upp í vatni
- geri athuganir á því hvað gerist með hluti af mismunandi gerð og lögun, t.d. úr plasti, viði, járni, korki, leir eða steini, þegar þeir eru settir í vatn
- geri athuganir á því hvað gerist þegar hlut er ýtt eða hann dreginn með mismiklum krafti og á mismunandi yfirborði
- geri athuganir sem sýna hvernig mismunandi kraftur getur breytt lögun efna, s.s. svamps, leirs, pappírs, gorms eða teygju
- tengi saman einfaldar straumrásir
- geri athuganir sem sýna að sumir hlutir leiða rafmagn en aðrir ekki og átti sig á hver eru sameiginleg einkenni þeirra hluta sem leiða rafmagn
- skoði rafmagnstæki sem t.d. gefa hljóð, hita eða ljós og ræði um hvaða tilgangi þau þjóna í lífi okkar
- kanni orkuþörf ýmissa tækja, s.s. bíla, síma, útigrilla, úra, reiðhjóla
Úr jarðvísindum
- þekki að það tekur langan tíma fyrir sólarljósið að berast til jarðarinnar og að sá tími er mældur í ljósárum
- búi í samvinnu til líkan af sólkerfinu
- þekki að tunglið orsakar sjávarföll
- skoði og fjalli um áhrif vatns á ýmis jarðefni, s.s. myndun polla og útlit fjallshlíða
- skoði og fjalli um áhrif vinda á ýmis jarðefni, s.s. uppblástur og sandöldur
- þekki mótunaráhrif
- hafsins á fjöruna, þ.e. hvernig fjörusteinar og berg mótast
- ánna, þ.e. hvernig ármöl mótast og beri hana saman við fjörumöl
- geti spáð fyrir um breytingar á umhverfi við mismunandi veðurskilyrði
- skilji algengustu veðurtákn sem notuð eru í veðurlýsingum
- ræði um hvaða hlutverki veðurspár gegna í íslensku samfélagi og hvaða tækni er beitt við veðurmælingar
- þekki að jörðin er byggð upp af
- kjarna
- möttli
- jarðskorpu
- hafi
- lofthjúp
- æfi viðbrögð við mögulegum náttúruhamförum í heimabyggð sinni, s.s. jarðskjálfta, flóði, snjóflóði, eldgosi
- þekki þekktar eldstöðvar
- í heimabyggð sinni
- á Íslandi
- þekki að hraun rennur yfir eldri jarðlög, það yngsta er efst og elsta neðst
Úr lífvísindum
- átti sig á hvað það er sem einkennir lifandi verur og greinir þær frá lífvana hlutum, s.s. hreyfing, næringarnám, vöxtur og æxlun
- átti sig á að allar lífverur þurfa vatn, loft, fæðu og búsvæði til að lifa
- þekki og geti nafngreint
- íslensk spendýr á landi
- helstu fugla í heimabyggð
- algeng smádýr
- geri athuganir á því hvernig eiginleikar ákveðinnar lífveru henta í því umhverfi sem hún býr í
- af eigin raun
- með hjálp gagna, s.s. myndbanda, bóka og tölvuforrita
- ræði og athugi hvernig lífverur, t.d. snjótittlingar, lifa af veturinn á Íslandi
- kanni eigin lífsvenjur og meti hvort þörf sé úrbóta, s.s. á mataræði, svefni, hreinlæti og umgengni
- þekki hvernig dýr annast afkvæmi sín samanborið við manninn