Korpuskóli
4. bekkur
Veturinn 2001 - 2002

Íslenska - Lestur
Björg Vigfúsína Kjartansdóttir

Lestur

1. Við lesum daglega upphátt til að æfa okkur í lestri

2. Við segjum frá bókinni sem við erum að lesa og fáum þannig tækifæri til að skýra út það efni sem við vorum að lesa og til að þjálfa okkur í skrift.


Lestur

Tenging við námskrá

  • Auka orðaforða, málskilning og lesskilning
  • Upplýsingaöflun bæði bókleg og á Netinu
  • Nákvæmnislestur
  • Geta skýrt út munnlega og skriflega það sem einstaklingurinn hefur lesið
  • Geta lesið fyrirmæli og farið eftir þeim.
  • Geta lesið upphátt, skýrt og greinilega.
  • Lesa sér til ánægju. (Stuðst við námskrá í íslensku gefin út af Menntamálaráðuneytinu, bls 38)

Markmið með því að kunna að lesa:

Af hverju þurfum við að kunna að lesa?

  • Til að geta aflað okkur fróðleiks og upplýsinga
  • Til að geta lesið okkur til skemmtunar

Leiðir:

  • Lesa upphátt heima minnst 3 bls.
  • Þegar bókin er búin skrifum við í aðra bók um hvað hún var og hvernig okkur fannst hún.
  • Lesa þegar okkur langar til.

Bækur:

  • Lesum meira saman og verkefnabók.
  • Litlu landnemarnir
  • Leifur Eiríksson
  • Púkablístran
  • Dagur í lífi drápskattar
  • Röndóttir spóar