Korpuskóli
1. bekkur 2002 - 2003
Íslenska
Markmið















Talað mál og framsögn
Nemandinn:
*fái þjálfun við hæfi í framburði íslenskra málhljóða.

*fái tækifæri til að tjá sig frammi fyrir bekkjarfélögum sínum.

*fari í leiki sem gera kröfur um munnlega tjáningu.

*fái tækifæri til að segja frá eigin reynslu.

*fái tækifæri til að ræða við bekkjarfélaga, t.d. þegar upp koma vandamál, og reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu.

*fái tækifæri til að kynna vinnu sína fyrir bekkjarfélögum og foreldrum.

*endursegi og/eða lesi eigin sögur og ljóð upphátt fyrir bekkjarfélaga sína.

*fái tækifæri til að undirbúa stuttar frásagnir.

*fái tækifæri til að taka þátt í stuttum leikþætti og/eða söngatriði.

*kynnist þeim reglum sem gilda þegar margir þurfa að tjá sig í einu.

*sé hvattur til að tala skýrt og áheyrilega.

*fái tækifæri til að nota leikræna tjáningu.

*fái tækifæri til að syngja algenga íslenska barnasöngva og taki þátt í fjöldasöng, m.a. söngva sem tengjast jólum.

Leiðir
*
Nemendur hlusta, tjá sig, spyrja og skoða (í hóp)
*Hljóðaaðferð í innlögn stafa
*Tengja staf og hljóð
*Tengja mynd og orð
*Orðaleikir
*Hlustunarleikir, rím, þulur og vísur
*Leikræn tjáning

*Syngja saman
*Læra að hlusta - bíða eftir hinum
*Þróunarverkefni
*Heimanám


Mat

*Símat


Bækur
*Ýmsar söngbækur
*Markviss málörvun
*Ýmsar barnabækur