Náttúrufræði
7 ára

2009 - 2010

 


Hlutverk náttúrufræðikennslu er meðal annars að auka orðaforða barnsins og opna um leið nýja heima. Leiðir sem verða farnar eru að barnið fái að upplifa með því að gera tilraunir, skrá og tjá sig um verkefnið sem það vinnur að. Lestrar kunnátta eykst með því barnið les sig til um efnið. Skriftarfærni eykst með ritunar-, og þemaverkefnum. Barnið fær tækifæri til að venja sig á að kanna, hlusta, spyrja, leita upplýsinga, skrá, vanda vinnubrögð og ekki síst tjá sig með orðum og myndum.

Verkefni vetrarins
• Vatn – hringrás – uppspretta – nýting – hreinleiki -
• Veður
• Líkaminn
• Tilraunir
              Stöðurafmagn - rafmagna hluti með núning
              Kraft – sogkraft – þyngdarkraft – segulkraft – rafkraft – vöðvakraft
               Skugga og ljós – hvernig ljós hreyfist og skuggar myndast
• Vor smádýr – fuglar – blóm – feril fræs hjá blómum, fuglum, fiðrildum, manninum
• Flokkun sorps - samspil manns og náttúru


Líkaminn
• "geta nafngreint flesta sjáanlega líkamshluta mannsins
• gera sér grein fyrir að líkaminn er gerður úr líffærum sem gegna ákveðnum hlutverkum, svo sem beinum, vöðvum, hjarta, blóðrás, lungum, meltingarfærum, heila og skynfærum
• gera sér grein fyrir mikilvægi ákveðinna þátta fyrir heilbrigði og líðan, svo sem heilsu, hreinlætis, fæðu, tannverndar, hreyfingar og svefns
• gera sér grein fyrir áhrifum fæðu á líkamann
• gera sér grein fyrir að ýmis utanaðkomandi efni eru skaðleg líkamanum
• gera sér grein fyrir að ýmsir sjúkdómar og sníklar eru smitandi en oft eru til ráð til að koma í veg fyrir þá    eða lækna" (AÐALNÁMSKRÁ GRUNNSKÓLA – NÁTTÚRUFRÆÐI OG UMHVERFISMENNT Menntamálaráðuneytið 2007 )
Inn í þetta blandast lífsleikni með tilfinningar og líðan.