Desember
1. bekkur
Korpuskóli

Björg Vigfúsína Kjartansdóttir

Söngvar

Söngvar

 

 

Jólasveinar einn og átta

Jólasveinar einn og átta,
ofan komu af fjöllunum.
Í fyrra kvöld, þá fór ég að hátta,
þeir fundu hann jón á Völlunum.
Ísleif hittu þeir utan gátta
og ætluðu´ að færa hann tröllunum;
en hann beiddist af þeim sátta
óvægust körlunum,
en þá var hringt öllum jólabjöllunum.

 

 

Það á að gefa börnum brauð

Það á að gefa börnum brauð
að bíta í á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð,
svo komist hún úr bólunum;
væna flís af feitum sauð,
sem fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.

 

Adam áti syni sjö

Adam átti syni sjö,
sjö syni átti Adam.
Adam elskaði alla þá
og allir gerðu sem Adam:
Hann sáði,
hann sáði
hann klappaði saman lófunum,
hann stappaði niður fótunum,
hann liðkaði sig í lendunum
og sneri sér í hring.

 

 

Jólasveinar ganga um gólf

Jólasveinar ganga um gólf
með gildan staf í hendi.
Móðir þeirra sópar gólf
og hýðir þá með vendi.

Ég sá mömmu kissa jólasvein

Ég sá mömmu kyssa jólasvein
við jólatréð í stofunni í gær.
Ég læddist létt á tá
til að líta gjafir á,
hún hélt ég væri steinsofandi
Stínu dúkku hjá.
Ég sá mömmu kitla jólasvein
og jólasveinninn út um skeggið hlær.
já, sá hefði hlegið með,
hann faðir minn hefð'ann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær.

 

 

Gekk ég yfir sjó og land

Gekk ég yfir sjó og land
hitti þar einn gamlan mann.
Sagði svo og spurði svo,
hvar áttu heima.
"Ég á heima á Klapplandi,
Klapplandi, klapplandi.
Ég á heima á Klapplandi,
Klapplandinu góða."

Stapplandi
Hopplandi
Grátlandi
Hlælandi
íslandi

Bráðum koma blessuð jólin

Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til,
Allir fá þá eitthvað fallegt,
Í það minnsta kerti og spil.

Hvað það verður veit nú enginn,
vandi er um slíkt að spá.
Eitt er víst að alltaf verður
ákaflega gaman þá
Jóhannes úr kötlum


Babbi segir, pabbi segir:
"Bráðum koma dýrleg jól."
Mamma segir, mamma segir:
"Magga fær þá nýjan kjól."
Hæ, hæ ég hlakka til
hann að fá og gjafirnar:
bjart ljós og barnaspil,
borða sætu lummurnar.
Benedikt Þ. Gröndal

Aðfangadagskvöld

Nú er Gunna á nýju skónum,
nú eru að koma jól.
Siggi e á síðum buxum,
Solla á bláum kjól.

Mamma er enn í eldhúsinu,
eitthvað að fást við mat.
Indæla steik hún er að færa
upp á stærðar fat.

Pabbi enn í ógnar basli,
á með flibbann sinn.
"Fljótur Siggi finndu snöggvast
flibbahnappinn minn!"


Kisu eitthvað órótt líka
út fer brokkandi.
Ilmurinn úr eldhúsinu
er svo lokkandi.

Á borðinu ótal bögglar standa,
bannað að gægjast í.
Kæru vinir ósköp erfitt
er að hlýða því.

Jólatréð í stofu stendur
stjörnunrnar glampar á
Kertin standa á grænum greinum,
gul og rauð og blá.
Ragnar Jóhannesson

 

 

Nú skal segja

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig litlar stúlkur gera:
Vagga brúðum, vagga brúðum,
og svo snúa þær sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja;
hvernig litlir drengir gera:
Sparka bolta, sparka bolta,
og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig ungar stúlkur gera:
Þær sig hneigja, þær sig hneigja,
og svo snúa þær sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig ungir piltar gera:
Taka ofan, taka ofan.
og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja,
hverngi gamlar konur gera:
Prjóna sokka, prjóna sokka
og svo snúa þær sér í hring.

 

 

 

Göngum við í kringum

Göngum við í kringum einiberjarunn,
einiberjarunn, einiberjarunn,
göngum við í kringum einiberjarunn,
snemma á mánudagsmorgnni

Svona gerum við,
er við þvoum okkar þvott,
þvoum okkar þvott,
þvoum okkar þvott,
svona gerum við,
er við þvoum okkar þvott
snemma á mánudagsmorgni.

… snemma á þriðjudagsmorgni.
Svona gerum við þegar við vindum okkar þvott.

..snemma á miðvikudagsmorgni.
Svona gerum við er við hengjum okkar þvott.

…snemma á fimmtudagsmorgni.
Svona gerum við þegar við teygjum okkar þvott.

…Snemma á föstudagsmorgni.
Svona gerum við er við straujum okkar þvott.

..snemma á laugardagsmorgni.
Svona gerum við er við skúrum okkar gólf.

…snemma á sunnudagsmorgni.
Svona gerum við er við greiðum okkar hár.

…seint á sunnudagsmorgni.
Svona gerum við er við göngum kirkjugólf.

Í skóginum stóð kofi einn

Í skóginum stóð kofi einn
sat við gluggan jólasveinn,
þá kom lítið héraskinn,
sem vildi komast inn.
Jólasveinn ég treysti á þig,
veiðimaður skýtur mig,
komdu litla séraskinn,
því ég er vinur þinn.
Hrefna S. Tynes

 

Skreytum hús með grænum greinum


Skreytum hús með grænum greinum
fa lalalala lalalala.
Gleði ríkja skal í bænum
fa lalalala lalalala.
Tendrum senn á trénu bjarta
fa lalalala lalalala.
Tendrum ljós í hverju hjarta
fa lalalala lalalala.

Aðventusálmur

Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer,
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesú barnið er.

Við kveikjum tveimur kertum á,
og komu bíðum hans,
því drottinn sjálfur soninn þá
mun senda í líkingu manns.

Við kveikjum þremur kertum á,
því konungs beðið er,
þótt Jesú sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.

Við kveikjum fjórum kertum á.
Brátt kemur gesturinn,
og allar þjóðir þurfa að sjá,
að það er frelsarinn.
(Lilja Kristjánsdóttir)

 

Bjart er yfir Betlehem

Bjart er yfir Betlehem,
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarna allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa, kæra.

Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir,
fundið sínum ferðum á
fjöldamargar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undur skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa, kæra.

Barni gjafir báru þeir.
Blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir,
lofgjörð Drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem,
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarna allra barna.

Ingólfur Jónsson

Í Betlehem er barn oss fætt

Í Betlehem er :,:barn oss fætt :,:
því fagni gjörvöll Adams ætt.
:,:Halelúja:,:

Það barn oss fæddi :,:fátæk mær.:,:
Hann er þó dýrðar Drottinn skær.
:,:Halelúja:,:

Hann var í jötu :,:lagður lágt.:,:
en ríkir þó á himnum hátt.
:,:Halelúja:,:

Davíð og Golíat