Listgreinar Hvað segir námskráin? |
Þrepamarkmið 1.
Bekkjar Nemandi Lögmál og aðferðir - vinni myndræna frásögn úr nánasta umhverfi, upplifunum og ímyndunum með því að nota á fjölbreytilegan hátt viðeigandi efni, verkfæri og tækni - þekki hugtakið grunnform og geti beitt þeim í myndgerð - þekki muninn á grunnformum og náttúrulegum formum - þekki frumlitina og geri einfaldar litablöndur - þekki mismunandi myndgerðir m.t.t. tækni, t.d. málverk, teikningu, þrykk, ljósmynd, styttu o.s.frv. í tengslum við það verkefni sem unnið er hverju sinni - þekki hugtakið myndbygging og viti hvað er nálægð og fjarlægð - skilji mikilvægi þess að ganga frá verkefnum, efnum og áhöldum - geri sér grein fyrir verðmæti þeirra efna og áhalda sem unnið er með hverju sinni Sögulegt og félagslegt samhengi - þekki mismunandi myndir í umhverfi sínu, hlutverk þeirra og gerð; sem dæmi um þetta má nefna myndir til að fegra umhverfið, myndir til að varðveita augnablik, skýringarmyndir, auglýsingar, myndskreytingar o.s.frv. Fagurfræði og rýni - fjalli um hvaða gildi myndverk getur haft fyrir hvern og einn - lýsi myndverki og skoðun sinni á því |