Þrepamarkmið í
samfélagsfræði, 1. bekkur
Sjálfsmynd og félagslegt
umhverfi - skilji mikilvægi
fjölskyldu, vina og skólafélaga og gildi þess að vera hluti af hópi -
skilji mikilvægi reglna í skólanum alveg eins og í umferðinni og í
samskiptum fólks - þjálfist í að hlýða reglum í leik og starfi í
skólanum Skóli og heimabyggð - kynnist skólabyggingunni,
skólalóðinni og nánasta umhverfi skólans undir leiðsögn kennara - þekki
nokkur örnefni, kennileiti, sögustaði og sögupersónur í
heimabyggð Land og þjóð - læri hver þjóðhátíðardagur
Íslendinga er, að við eigum þjóðsöng og höfum forseta, Alþingi og
ríkisstjórn, viti hvað forsetinn heitir og hvar hann býr og að aðrar
þjóðir eiga líka þjóðhátíðardag, þjóðsöng og þjóðhöfðingja - kynnist
nokkrum íslenskum þjóðsögum - greini samspil manns og náttúru með
tilliti til búsetu, atvinnu fólks og myndunar þéttbýlis - tileinki sér
frásagnir af landnámsmönnum og þekki nöfn nokkurra, t.d. úr
heimabyggð Heimsbyggð - kynnist því að til eru margar þjóðir
og mörg tungumál í heiminum - læri um ólíka siði og venjur í heiminum,
t.d. með því að heyra frásögn nýbúa af siðum í framandi
landi Tími - greini upphaf, miðju og endi í frásögn og geti
raðað atburðum í tímaröð, t.d. með hjálp spila og leikja - þekki
árstíðirnar, heiti vikudaga og mánaða og mun á degi, viku, mánuði, ári,
áratug og öld - læri að nota dagatal - verði handgenginn algengum
tímahugtökum eins og fyrir langalöngu, í gamla daga, einu sinni, fortíð,
nútíð, framtíð Rýni - átti sig á muninum á sannsögu og
skáldsögu, t.d. með því að bera eigin reynslu saman við skáldsögu eða
ævintýri - kanni aðstæður og fyrirbæri og skrái athuganir sínar í máli
og/eða mynd í sögubók - læri hvernig upplýsingar um liðna tíð er að
hafa í gömlum ritum en að sagan hafi verið til löngu áður en ritmál varð
til; kynnist einnig nokkrum dæmum um fornleifar, t.d. beinum dýra og
manna Innlifun og víðsýni - fái að upplifa söguna í gegnum
áþreifanlega hluti, svo sem byggingar, minnismerki, sögustaði í náttúrunni
og gamla muni - öðlist skilning á gildi þess að kynnast fyrri tíð með
samtölum við eldra fólk - kynnist því hvernig sagan er allt í kringum
okkur og við erum hluti af henni Túlkun og tjáning - fái
þjálfun í að flytja mál sitt skýrt og skipulega í heyranda hljóði og
hlusta á aðra - túlki atburði t.d. í leik, myndsköpun, tali, texta,
söng og/eða leikrænni tjáningu fyrir bekkjarfélaga og e.t.v.
foreldra
Úr aðalnámskrá grunnskóla samfélagsfræði
Menntamálaráðuneytið 1999 |