Desember
1. bekkur
Korpuskóli

Björg Vigfúsína Kjartansdóttir

Verkefni

Daglega, syngja jólasöngva, fara með bænir og vinna verkefni tengd kristinfræði.
Unnið jafnhliða með stærðfræði (Einingu) og jólaföndur.

Verkefni 1. Tveir dagar

Lesa um sköpunina.
a) Búa til mynd - líma svart karton og hvítan silkipappír.

b) Búa til mynd um sköpunina s.s. dýr, land, gróður, vötn, fjöll.

c) Búa til mynd um sköpun sólarinnar, tunglisns og stjarnanna.

Texti

Verkefni 2.

Lesa um Adam og Evu í Paradís.

a) Klippimynd af Adam og Evu í Paradís með höggorminum - eða teikna með olíulitum.

Verkefni 3.

Lesa sögu hirðanna - jólasagan.

a) Vinna mynd um hirðana

b) teikna mynd af Jesúbarninu.

 

Texti sem fylgir myndunum - með tengiskrift.

Önnur verkefni t.d í hringekju eða valsvæðum.

Fána - tíu á bandi.

Jólatré úr grænukartoni - líma silkipappírskúlur á það.

Klippa út jólasveina - Eining

Verkefni í Einingu

Baka

Perlufesti

Borðdúk

Snjókorn