|
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á
himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn
vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt
brauð. Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og
fyrirgefum vorum skuldunautum. Og eigi leið þú oss í
freistni, heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið, mátturinn og
dýrðin að eilífu. Amen.
Signingin
Í nafni Guðs föður, sonar og heilags
anda. Amen
Vertu guð faðir.
Vertu guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
|