|
|
Jólasveinar einn og
átta
Jólasveinar einn og átta, ofan komu
af fjöllunum. Í fyrra kvöld, þá fór ég að hátta, þeir fundu hann jón
á Völlunum. Ísleif hittu þeir utan gátta og ætluðu´ að færa hann
tröllunum; en hann beiddist af þeim sátta óvægust körlunum, en þá
var hringt öllum jólabjöllunum.
|
Það á að gefa börnum brauð
Það á að gefa börnum brauð að bíta í
á jólunum, kertaljós og klæðin rauð, svo komist hún úr
bólunum; væna flís af feitum sauð, sem fjalla gekk á hólunum. Nú
er hún gamla grýla dauð, gafst hún upp á rólunum. |
Adam áti syni sjö
Adam átti syni sjö, sjö syni átti
Adam. Adam elskaði alla þá og allir gerðu sem Adam: Hann
sáði, hann sáði hann klappaði saman lófunum, hann stappaði niður
fótunum, hann liðkaði sig í lendunum og sneri sér í
hring.
|
Jólasveinar ganga um
gólf
Jólasveinar ganga um gólf með gildan staf í hendi. Móðir þeirra
sópar gólf og hýðir þá með vendi. |
Ég sá mömmu kissa
jólasvein
Ég sá mömmu kyssa jólasvein við
jólatréð í stofunni í gær. Ég læddist létt á tá til að líta gjafir
á, hún hélt ég væri steinsofandi Stínu dúkku hjá. Ég sá mömmu
kitla jólasvein og jólasveinninn út um skeggið hlær. já, sá hefði
hlegið með, hann faðir minn hefð'ann séð mömmu kyssa jólasvein í
gær. |
Gekk ég yfir sjó og
land
Gekk ég yfir sjó og land hitti þar
einn gamlan mann. Sagði svo og spurði svo, hvar áttu heima. "Ég á
heima á Klapplandi, Klapplandi, klapplandi. Ég á heima á
Klapplandi, Klapplandinu góða."
Stapplandi Hopplandi Grátlandi Hlælandi íslandi |
Bráðum koma blessuð
jólin
Bráðum koma blessuð jólin, börnin
fara að hlakka til, Allir fá þá eitthvað fallegt, Í það minnsta
kerti og spil.
Hvað það verður veit nú enginn, vandi
er um slíkt að spá. Eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman
þá Jóhannes úr kötlum
Babbi segir, pabbi segir: "Bráðum
koma dýrleg jól." Mamma segir, mamma segir: "Magga fær þá nýjan
kjól." Hæ, hæ ég hlakka til hann að fá og gjafirnar: bjart ljós
og barnaspil, borða sætu lummurnar. Benedikt Þ.
Gröndal
|
Aðfangadagskvöld
Nú er Gunna á nýju skónum, nú eru að
koma jól. Siggi e á síðum buxum, Solla á bláum kjól.
Mamma er enn í eldhúsinu, eitthvað að
fást við mat. Indæla steik hún er að færa upp á stærðar
fat.
Pabbi enn í ógnar basli, á með
flibbann sinn. "Fljótur Siggi finndu snöggvast flibbahnappinn
minn!"
Kisu eitthvað órótt líka út fer
brokkandi. Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi.
Á borðinu ótal bögglar standa, bannað
að gægjast í. Kæru vinir ósköp erfitt er að hlýða því.
Jólatréð í stofu stendur stjörnunrnar
glampar á Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og
blá. Ragnar Jóhannesson
|
Nú skal segja
Nú skal segja, nú skal segja, hvernig
litlar stúlkur gera: Vagga brúðum, vagga brúðum, og svo snúa þær sér
í hring.
Nú skal segja, nú skal segja; hvernig
litlir drengir gera: Sparka bolta, sparka bolta, og svo snúa þeir
sér í hring.
Nú skal segja, nú skal segja, hvernig
ungar stúlkur gera: Þær sig hneigja, þær sig hneigja, og svo snúa
þær sér í hring.
Nú skal segja, nú skal segja, hvernig
ungir piltar gera: Taka ofan, taka ofan. og svo snúa þeir sér í
hring.
Nú skal segja, nú skal segja, hverngi
gamlar konur gera: Prjóna sokka, prjóna sokka og svo snúa þær sér í
hring. |
Göngum við í kringum
Göngum við í kringum
einiberjarunn, einiberjarunn, einiberjarunn, göngum við í kringum
einiberjarunn, snemma á mánudagsmorgnni
Svona gerum við, er við þvoum okkar
þvott, þvoum okkar þvott, þvoum okkar þvott, svona gerum
við, er við þvoum okkar þvott snemma á mánudagsmorgni.
… snemma á þriðjudagsmorgni. Svona
gerum við þegar við vindum okkar þvott.
..snemma á miðvikudagsmorgni. Svona
gerum við er við hengjum okkar þvott.
…snemma á fimmtudagsmorgni. Svona
gerum við þegar við teygjum okkar þvott.
…Snemma á föstudagsmorgni. Svona
gerum við er við straujum okkar þvott.
..snemma á laugardagsmorgni. Svona
gerum við er við skúrum okkar gólf.
…snemma á sunnudagsmorgni. Svona
gerum við er við greiðum okkar hár.
…seint á sunnudagsmorgni. Svona gerum
við er við göngum kirkjugólf. |
Í skóginum stóð kofi
einn
Í skóginum stóð kofi einn sat við
gluggan jólasveinn, þá kom lítið héraskinn, sem vildi komast
inn. Jólasveinn ég treysti á þig, veiðimaður skýtur mig, komdu
litla séraskinn, því ég er vinur þinn. Hrefna S.
Tynes |
Skreytum hús með grænum
greinum
Skreytum hús með grænum
greinum fa lalalala lalalala. Gleði ríkja skal í bænum fa
lalalala lalalala. Tendrum senn á trénu bjarta fa lalalala
lalalala. Tendrum ljós í hverju hjarta fa lalalala
lalalala.
|
Aðventusálmur
Við kveikjum einu kerti á. Hans koma
nálgast fer, sem fyrstu jól í jötu lá og Jesú barnið er.
Við kveikjum tveimur kertum á, og
komu bíðum hans, því drottinn sjálfur soninn þá mun senda í líkingu
manns.
Við kveikjum þremur kertum á, því
konungs beðið er, þótt Jesú sjálfur jötu og strá á jólum kysi
sér.
Við kveikjum fjórum kertum á. Brátt
kemur gesturinn, og allar þjóðir þurfa að sjá, að það er
frelsarinn. (Lilja Kristjánsdóttir) |
Bjart er yfir Betlehem
Bjart er yfir Betlehem, blikar
jólastjarna. Stjarnan mín og stjarnan þín, stjarna allra
barna. Var hún áður vitringum vegaljósið skæra. Barn í jötu borið
var, barnið ljúfa, kæra.
Víða höfðu vitringar vegi kannað
hljóðir, fundið sínum ferðum á fjöldamargar þjóðir. Barst þeim
allt frá Betlehem birtan undur skæra. Barn í jötu borið
var, barnið ljúfa, kæra.
Barni gjafir báru þeir. Blítt þá
englar sungu. Lausnaranum lýstu þeir, lofgjörð Drottni
sungu. Bjart er yfir Betlehem, blikar jólastjarna. Stjarnan mín
og stjarnan þín, stjarna allra barna.
Ingólfur Jónsson |
Í Betlehem er barn oss
fætt
Í Betlehem er :,:barn oss fætt
:,: því fagni gjörvöll Adams ætt. :,:Halelúja:,:
Það barn oss fæddi :,:fátæk
mær.:,: Hann er þó dýrðar Drottinn skær. :,:Halelúja:,:
Hann var í jötu :,:lagður lágt.:,: en
ríkir þó á himnum hátt. :,:Halelúja:,: |
Davíð og
Golíat |