Hópastarf/þemavinna
Í mörgum leikskólum
hér á landi er unnið hópastarf í tengslum
við hugmyndafræði Reggio Emilía. Þeir styðjast
við þemahring sem er ættaður frá Svíðþjóð.
Þegar talað er um þemavinnu er átt við samþættingu
mismunandi forma t.d. lestur fræðandi bóka, leikrænni
tjáningu, myndlist, tónlist og vettvangsferða.. Í
gegnum leikinn læra nemendur með því að upplifa
og gera tilraunar.
Markmið þemavinnu er að:
- örva sjálfsmynd - sjálfsvitund
og sköpunargleði barnsins
- efla alla þroskaþætti
barnsins. Barnið fái
að snerta, skynja og grípa með öllum skilningavitum.
- kanna / rannsaka og gera tilraunir
Uppbygging hópastarfsins:
- Byrjað er á að heilsast.
- Með því æfist
barnið í að koma fram og segja hvað það
heitir
- Upphitun - markmiðið er að
mynda tengsl í hópnum og hrista hann saman. Farið
er í skemmtilega hópleiki sem tengjast þemanu sem
er verið að vinna með. Barnið þjálfast
í félagslegum samskiptum, tillitsemi, hreyfingu og málþroska.
- Tilraun - Barnið fær að
rannsaka og kynnast þemanu útfrá mismunandi efnivið
með eigin aðferðum. Útkoman úr tilraununum
er ekki markmiðið heldur ferlið að upplifa.
- Aðalæfing - Hópurinn
vinnur útfrá tilraununum en fær ákveðin
verkefni og/eða efnivið til að vinna með.
- Framsögn - Markmiðið er
að barnið sjóist smám saman í að tjá
sig fyrir framan hópinn, þori að segja frá sinni
upplifun og tilfinningum sínum eitt og eitt.
- Kveðja - markmiðið er að
börnin temji sér góða framkomu. Ferlinu/hringnum
er lokað þannig að hópurinn tekur saman höndum
og þakkar fyrir samstarfið.
Í
efnisyfirlit Næsta
síða
|